May 092012
 

Brosið okkar

Karen Erla fór í skólann í dag í fyrsta skipti. Hún hitti krakkana sem verða með henni í bekk í haust og fengu þau að leika sér saman í klukkutíma. Óhætt er að segja að Karen var spennt fyrir daginn og ekki minnkaði það eftir á. Má segja að hún hafi eignast vinkonu strax því hún límdi sig við eina sem var þarna. Þær ætla að hittast um helgina og kynnast betur.

Okkur líst bara vel á skólann, flott aðstaða og kennararnir virðast almennilegir.

Nú er bara að þrauka sumarið og byrja 20.ágúst klukkan 08:20.

Ofurhetjur

 Posted by at 15:25  Blogg  No Responses »
Apr 262012
 

Kári mætti í ræktina í dag klæddur sem uppáhalds ofurhetjan sín, Leiftur McQueen.
Á myndinni er hann með kennaranum sínum Sebastian, sem er klæddur sem Pétrur Pan.

20120426-172443.jpg

Gleðilegt sumar

 Posted by at 15:47  Blogg  Comments Off
Apr 192012
 

Þó að Svíar haldi ekki Sumardaginn fyrsta hátíðlegan, þá ættu þeir að gera það. Allavaga hér á Skáni þar sem hitinn er orðinn sumarlegur. 14 gráður í dag þegar best lét.
Við gáfum hvort öðru sumargjafir og héldum i gamlar hefðir.
Annars er allt gott að frétta. Krakkarnir stækka eins og brauð í hefofni og skóbúðin tekur til slatta af orkunni okkar.

Kári í bisness

 Posted by at 19:57  Blogg  Comments Off
Apr 032012
 

Hallgrímur Kári, 2ja ára, vildi endilega taka með sér leikfangabíl af leikskólanum í gær. Fóstran reyndi að útskýra fyrir honum að það má ekki taka dót heim til sín. Hann fann ráð við þessu, fór fram í úlpuna sína, sótti tvær krónur og vildi kaupa bílinn!

Skóbransinn

 Posted by at 19:03  Blogg  Comments Off
Mar 312012
 

20120331-210620.jpgJæja, þá erum við bara byrjuð í skóbransanum af fullum krafti. Skóbúðin okkar La Lujo opnaði í dag.
Endilega kíkið við næst þegar þið eruð í Malmö (eða Köben, talavert hagstæðara að kíkja yfir sundið) og kaupið flotta skvísuskó.
Hér er vefverslunin, já við sendum til Íslands.
Hér er skóbloggið
Og hér er Facebook síðan okkar

Síðasta vikan

 Posted by at 9:23  Blogg  Comments Off
Feb 192012
 

Nú er ég í flugi á leið til Búdapest. Já, það er internet um borð :) Frábært hjá Norwegian að hafa frítt net um borð. Nýja uppáhalds flugfélagið mitt.

Allavega. Þá ferð síðasta vikan mín af þessum fjórum að hefjast. Þetta er búið að vera skemmtilegt verkefni og vonandi verða síðustu 5 dagarnir það líka.
Það leiðinlegasta hingað til var rúmlega 4 tíma seinkun á fluginu mínu á föstudaginn sem eyðilagði nánast allan daginn fyrir mér. Það snjóaði svo hressilega í Búdapest að vellinum var hreinlega lokað þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir mínar að fá ungverska kollega mína til að gefa minni vél séns á að lenda :)

Eitthvað verður maður að undirbúa skóbúðina á kvöldin en svo tekur maður törn með Þorra málara á föstudaginn og klárar þessa búð á einni helgi. Ekkert hangs.

Að lokum nokkrir punktar um Ungverjaland:

  • Ungverjar borða gjarnan rjómatertur og brauðtertur í morgunmat
  • Allan annan mat djúpsteikja þeir
  • Ungverjar spila keilu með minni kúlu en venjulegt fólk, hún passar í lófann og er ekki með neinar holur fyrir puttana. Brautin er líka helmingi styttri.
  • Ungverjum finnst bara fínt að vera berir að ofan í ræktinni (aðallega karlmenn)
  • Ungverjar döbba allar bíómyndir og sjónvarpsefni með sínu “fallega” máli
  • Beckham kamburinn sem var í tísku á Íslandi fyrir sirka 7 árum er sjóðheitur hér, snjóþvegnar gallabuxur líka
  • Í einni verslunarmiðstöðinni hérna er svaka langur gangur á 3.hæð. Á ganginum eru fullt af leðursófum. Fólk kemur mikið og kelar í þessum sófum, um hábjartan dag.
  • Ungverjar heilsast með handabandi á hverjum einasta degi. Ég tek í hendina á sirka 20 köllum á hverjum einasta degi, tilvalið fyrir kvefpestir að dreifa sér. Konurnar fá bara handaband ef þær rétta fram höndina, maðurinn má ekki krefja konuna um handaband.

seeya,
Hákon